Djúpsteikt ýsuflök með camembertfyllingu - - Handa 5 persónum |
| Ýsuflak | meðalstórt | | | Salt / pipar | | | | Sítrónusafi | sítróna | 1/2 st | | Camembertostur | 1 | st | | Egg | 1 | st | | Vatn | 1 | matskeið | | Rasp / Hveiti | | | | Matarolía | 2 | bollar |
| | 1. Hellið yfir flakið sítrónusafa, stráið á það salti og pipar. Látið það bíða 10 - 15 mínútur.2. Skerið flakið í 10 sm langar sneiðar, vefjið þær síðan upp og festið saman með tannstönglum. Veltið síðan rúllunum upp úr hveiti, dýfið í eggið og loks raspið.3. Hitið olíuna í frekar litlum potti. Það er betra að nota lítinn pott til þess að spara olíuna og steikja þá í tvennu lagi í pottinum.4. Steikið rúllurnar í feitinni í 3 - 4 mínútur á hvorri hlið.Meðlæti: Ristað brauð og ferskar papríkusneiðar eða soðnar kartöflur, sem klipptri seinselju er stráð yfir. |
Karryplokkfiskur með eggjum og hrísgrjónum - - Handa 5 persónum |
| Ýsuflak | ca hálft | | | Hrísgrjón | 1 bolli | | | Egg | 2-3 | st | | Karry | 1-2 | tsk | | Smjör eða Smjörlíki | 50 | gr | | Smjör eða Smjörlíki | 50 | gr |
| | 1. Sjóðið hrísgrjónin í saltvatni.2. Harðsjóðið eggin, leggið þau í kalt vatn og takið skurnina af þeim.3. Bræðið smjörið á pönnu, brúnið karryið í smjörinu, en gætið þess að það brenni ekki.4. Myljið fiskinn út í smjörið og hrærið lauslega saman. Bætið síðan hrísgrónunum saman við.5. Setjið karryplokkfiskinn í kringlótt fat, skerið eggin í báta, og raðið yfir. |
Ofnsoðin Ýsa með rækjum og grænum baunum - - Fyrir 4 persóur |
| Ýsuflak | meðalstórt | | | Rækjur | 100 | gr | | Sítrónusafi | sítróna | 1/2 st | | Salt / Pipar | | | | Tómatmauk ( puré ) | 2 | tsk | | Sýrður rjómi | 1/2 | bikar | | Dill ( þurkað ) | 2 | tsk | | Grænar baunir | 100 | gr |
| | 1.Kreistið sítrónusafa yfir flakið, stráið salti og pipar á það, og látið bíða í 10-15 mínútur. Stráið dilli yfir það.2.Ef þið notið frystar baunir, eru þær soðnar í 5-7 mínútur.3.Smyrjið eldfast fat, leggið flakið í fatið, setjið lok eða steikingarpabbír yfir og sjóðið í heitum ofni, 180 C, í 10-15 mínútur.4.Takið fatið úr ofninum,hellið soðinu, sem myndast hefur, í pott, bætið tómatmauki út í, látið sjóða,takið af hitanum og bætið sýrðan rjómanum í ásamt rækjunum.5.Hellið sósunni yfir fiskinn, setjið baunirnar öðrum megin og brauðsnittur hinum megin. |
Glóðarsteiktur steinbítur með beikoni - - Fyrir 6 persóur |
| Steinbítur þykkar sneiðar | 6 | | | Beikon | 6 | st | | Sítrónusafi | 1 sítrónu | | | Salt / Pipar | | | | Epli | 2 | st |
| | 1.Hellið sítrónusafanum yfir steinbítssneiðarnar, stráið salti og pipar á þær. Látið bíða í 10-15 mínútur. 2.Vefjið beikonsneiðunum í kringum steinbítssneiðarnar og festið með tannstönglum. 3.Takið kjarnan úr eplunum, skerið þau í sneiðar. 4.Glóarsteikið steinbítssneiðarnar í 10 mínútur á hvorri hlið, glóðarsteikið eplin um leið. 5.Fisksneiðunum raðað öðrum megin á fat og eplasneiðunum hinum megin. Meðlæti: Kartöflusallat. |
Steinbítur steiktur með osti og heilhveiti - - Fyrir 6 persóur |
| Steinbítur | 750 | gr | | sítrónusafi | 1/2 | st | | Salt / Pipar | | | | Heilhveiti | 1/2 | dl | | Egg | 1 | st | | Matarolía og smjör | 3+1 | msk+msk | | Graslaukur eða steinselja | 1 | búnt | | Gorgansola ostur | 1 | dl rifinn |
| | 1.Skerið steinbítinn í 3 sm sneiðar, hellið yfir hann sítrónusafa, stráið á hann salti og pipar og látið bíða í 10-15 mínútur. 2.Rífið ostinn fínt, blandið honum saman við heilhveitið. 3.Sláið eggið sundur með vatni. 4.Hitið olíu og smjör á pönnu. Veltið steinbítnum uppúr egginu, síðan ost/heilhveitinu, og steikið á pönnu í 5 mínútur á hvorri hlið. 5.Stráið klipptum graslauk eða steinselju yfir um leið og borið er fram. |
Saltfiskrúllur - - 6 persónur |
| Saltfiskur | 500 | gr | | Kartöflur | 250 | gr | | Pipar | 1/4 | tsk | | Múskathneta eða duft | 1/4 | tsk | | Egg | 2 | st | | Rasp | 1 | dl | | Matarolíja + Smjör | 3 + 2 | msk |
| | 1. Sjóðið fiskinn í ca 10 mínútur. Takið síðan af honum roðið.2. Sjóðið kartöflurna og afhýðið.3. Hrærið eggin ásamt pipar og múskati í hrærivél. Myljið fiskinn og kartöflurnar út í. Hrærið þar til þetta er orðið jafnt. Mótið þá aflangar rúllur.4. Veltið rúllunum upp úr raspi. Hitið olíjuna og smjörið á pönnu og steikið rúllurnar í nokkrar mínútur í feitinni.Meðlæti: Blaðsallat,gúrkur og tómatar. |
Saltfiskur með kryddi,lauk og tómatmauki - - 5 persónur |
| Saltfiskur | 500 | gr | | Matarolía | 3 | msk | | Hvítlauksgeiri | 1 | st |
| | 1. Byrjið á að sjóða saltfiskinn í ca 10 mínútur. Takið hann upp úr soðini og fjarlægið roðið.2. Hitið olíuna í potti, merjið hvítlaukinn, saxið laukinn, skerið blaðlaukinn í þunnar sneiðar. Sjóðið þessar 3 lauktegundir í olíunni í 7 mínútur, gætið þess að þetta brúnist ekki.3. Hrærið tómatmaukið út með vatninu, hellið því út í laukinn, bætið sage, timian og rosemary í, saxipð paprikuna, rífið hráar kartöflurnar og sjóðið þetta saman í 10-12 mínútur.4. Bætið þá saltfiskinum í smábitum út í og hitið vel.Meðlæti: Rúgbrauð |
Saltfiskbollur eða lummur með rúsínum - - 4-5 persónur |
| Saltfiskur | 500 | gr | | Smjör eða smjörlíki | 30 | gr | | Hveiti | 30 | gr | | Mjólk | 2 | dl | | Egg | 2 | st | | Rúsínur | 1/2 | dl | | Pipar ný malaður | 1/4 | tsk | | Matarolía + smjör | 2 + 2 | msk |
| | 1. Sjóðið saltfiskinn í ca 10 mínútur. Takið síðan roðið af honum og skiljið sundur með gaffli. 2. Bræðið smjörið í potti, hrærið hveiti út í, þynnið með mjólkinni og búið til uppbakaðan jafning. Kælið.3. Setjið jafninginn í hrærivél, hrærið eggjarauðurnar í, bætið pipar í, hrærið síðan saltfiskinum saman við. Reynið að láta þetta janfnast sem best saman. Blandið síðan stífþeittum hvítunum og rúsínunum út í. 4. Hitið olíu og smjör á pönnu, búið til bollur eða lummur úr deginu og steikið í feitinni. Meðlæti: Soðnar kartöflur og tómatsneiðar með kliptum graslauk og kryddsmjör. |